Skip to product information
1 of 11

Woolberry Naturalnie

Skel úr merino ull

Skel úr merino ull

Regular price 4.690 ISK
Regular price 4.690 ISK Sale price 4.690 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Stærð
Mynstur

Skeljar úr tvöfaldri merino ull sem koma í nokkrum mynstrum. Ullin er slétt og mjúk og hentar fyrir viðkvæma húð. Ullarskeljarnar eru með mjúkar teygjur við læri, bak og maga til að hindra leka. 


Stærðir 

Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð. 

Stærð 1  |  2,5-6 kg 

Stærð 2  |  5,5-10 kg

Stærð 3  | 7-14 kg 

Stærð 4  | 11-17 kg 

 

Notkun 

Bleyjuskeljar úr ull gegna sama hlutverki og aðrar skeljar, að vera vatnsfráhrindandi lag yfir rakadræga bleyju sem er undir. Rakadræga hlutinn getur til dæmis verið innlegg, preflat bleyja eða flat bleyja. Fyrst er rakadræga bleyjan sett á barnið og svo ullarskelin sett yfir. 

Til að ull virki sem vatnsfráhrindandi skel yfir bleyju er hún lögð í bleyti í lanólín. 

Ullarskeljarnar frá Woolberry Naturalnie eru aðsniðnar og hannaðar til þess að falla vel að barninu og hámarka hreyfigetu barnsins. Vængirnir á skeljunum eru til að mynda mjórri en á flestum öðrum skeljum til þess að barnið geti hreyft fótleggi auðveldlega, þrátt fyrir að barnið kunni að hafa stór læri. Hafa þarf í huga að innri bleyjan, rakadrægi hlutinn, getur því síður verið fyrirferðamikill um mjaðmirnar ef ullarskel frá Woolberry Naturalnie á að koma yfir. Þó er hægt að nota langflestar bleyjur undir enda hægt að brjóta þær á ýmsa vegu til að þess að vera með mjórri vængi.

 

Þvottur 

Handþvoið ullarskelina og notið milda sápu sem ætluð er til ullarþvotts. 

Ótrúlegt en satt minnkar umfang þvotts ef notaðar eru ullarvörur. Ástæðan fyrir því er að í stað þess að þvo skeljar eftir hverja notkun, þá þarf að þvo ullina mun sjaldnar. Ekki þarf að þvo ullina þó svo að þvag berist í hana, á milli bleyjuskipta er nóg er að leggja ullarskeljar þannig að það lofti vel um þær og þá gufar rakinn upp. Smellið hér fyrir einfaldar leiðbeiningar fyrir ullarþvott. 


 

Efni 

100% ull 

Öll efni sem notuð eru í þessa vöru eru 100% Oeko-Tex® vottaðar. 

Ullin er fengin á grimmdarlausan (e. cruelty-free) máta. Í því felst að aðferð sem á ensku kallast mulesing er ekki beitt á dýrin. 

 

Framleiðsla 

Stofnandi Woolberry Naturalnie hannar og framleiðir allar sínar vörur sjálf en hún er staðsett í Póllandi. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)