Skilmálar

Nafn: Tau ehf

Heimilisfang: Jófríðarstaðavegur 10, 220 Hafnarfjörður

Símanúmer: 6613436

Netfang: tau@tau.is 

 

Pantanir

Tau ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending vöru

Pantanir í vefverslun á tau.is eru afgreiddar a.m.k. tvisvar í viku, yfirleitt mánudaga og fimmtudaga. Á þetta bæði við um sóttar og sendar pantanir. Tíðnin tvisvar í viku er lágmark en yfirleitt eru pantanir afgreiddar oftar. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti eða Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts eða Dropp um afhendingu vörunnar. Tau ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Tau ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk og fer prósentan eftir vöruflokkum skv. íslenskum lögum. Sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Kaupandi ákveður þann afhendingarkost sem viðkomandi vill og greiðir fyrir það í pöntunarferli ef við á. 

 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

 

Trúnaður og öryggi 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Tau ehf notar netverslunarkerfi Shopify og innbyggt í kerfið er notkun á vafrakökum (e. cookies). Hér má sjá upplýsingar frá Shopify um mismunandi tegundir af vafrakökum. 

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.