Afhending
Við afhendum pantanir með sendingarþjónustu Dropp, hvort sem er á afhendingarstaði Dropp eða sent heim að dyrum. Við viljum jafna hlut allra viðskiptavina óháð búsetu og bjóðum því sömu kjör fyrir sendingar á landsbyggðina eins og á höfuðborgarsvæðinu.
Pantanir í vefverslun eru afgreiddar a.m.k. tvisvar í viku, yfirleitt mánudaga og fimmtudaga. Tíðnin tvisvar í viku er lágmark en yfirleitt eru pantanir afgreiddar oftar. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar, sjá nánar í skilmálum.