Skip to product information
1 of 8

Pisi

Muslin flat bleyjur

Muslin flat bleyjur

Regular price 1.590 ISK
Regular price 1.590 ISK Sale price 1.590 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Stærð

Muslin flat bleyjur eru sérlega einfaldar og notendavæn lausn. Auðvelt að þvo og þorna sérlega hratt. Gerðar úr 100% lífrænni bómull. 

 

Stærðir 

Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð. 

Stærð 1  |  Frá 2,5 kg  |  44x52 cm

Stærð 2  |  Frá 5 kg    |  54x63 cm 

Stærð 3  |  Frá 9 kg    | 58x77 cm 

Ef þú ert í vafa, þá mælum við almennt frekar með að kaupa stærðina fyrir ofan frekar en fyrir neðan. Ef nota á ullarskelina frá Pisi, þá mælum við með að taka sömu stærð eða næstu stærð fyrir ofan af muslin bleyjunni, miðað við stærðina sem tekin er af ullarskelinni. 

 

Notkun 

 Rakadrægt innra lag 

 Vatnsfráhrindandi ytra lag

Þessi vara er hluti af innra lagi bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis teygjanlegu ullarskelinni frá Pisi.

Bleyjurnar frá Pisi eru mjög notendavænar og hér ríkir einfaldleikinn. Bleyjuna má nota samanbrotna inn í hvers kyns skel og einnig sem innleg í vasableyju. Einnig er hægt að brjóta bleyjuna í mismunandi brot sem hægt er að vefja utan um barnið og festa með bleyjufestingu. Þó skal tekið fram að bleyjan er ekki ferningslaga, þ.e. ekki allar hliðar jafn langar, sjá mál hér að ofan. 

Hægt er að nota muslin bleyjuna til ýmissa annarra verka, tilvalið að nota sem ropklút, til að þurrka bleyjusvæðið, sem lítið handklæði, viskustykki eða þvottastykki. 

 

Þvottur

Má þvo á allt að 60° og þurrka á lágum hita í þurrkara. Þó ber að nefna að flat bleyjur eru sérlega snöggar að þora á snúru, ætti aðeins að taka nokkrar klukkustundir jafnvel á köldum vetrardegi. Þunnar bleyjur á borð við flat bleyjur hreinsast mjög vel í þvotti og sumir telja að þunnar bleyjur bjóði upp á besta hreinlætið í úrvali taubleyja. 

Bleyjur úr náttúrulegum efnum þarf að þvo nokkrum sinnum til að fjarlægja náttúrulegar olíur úr efninu og ná þannig upp rakadrægni efnisins. 

 

Efni 

Bleyjan er gerð úr tveimur lögum af 100% lífrænni bómull sem er með GOTS vottun. Bómullin er óbleikjuð/óhvíttuð sem þýðir að hún hefur ekki verið gerð hvítari með notkun efna. Bómullin er svo lítið unnin að mögulega gætir þú rekið augun í agnarsmá bómullarfræ inn á milli þráða í efninu. Hér er um að ræða eins náttúruleg efni og kostur er á. Efnið er 150 GSM. 

Hjá Pisi er mikið lagt upp úr að velja efni af miklum gæðum, bæði með tilliti til endingar en ekki síður uppruna efnisins og við hvaða aðstæður það er framleitt. 

 

Framleiðsla 

Vörurnar frá Pisi eru framleiddar í heimalandinu Eistlandi af eigandanum sjálfum og einnig í samvinnu við hæfileikaríka saumakonu. Saman færa þær okkur handverksvörurnar frá Pisi. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!