Skip to product information
1 of 3

Pisi

Liner úr ull

Liner úr ull

Regular price 1.290 ISK
Regular price Sale price 1.290 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Ullarliner frá Pisi sem eykur vatnsfráhrindandi eiginleika ullarskeljarinnar.


Stærðir

Linerinn passar inn í allar stærðir af skeljum frá Pisi og ætti einnig að passa í flestar aðrar ullarskeljar frá öðrum framleiðendum. Linerinn er um 11x24 cm.


Notkun

Ullarliner frá Pisi er frábært að eiga til þess að auðvelda enn frekar notkun á ullarbleyjum.

Linerinn getur komið sér vel til dæmis:

- í byrjun þegar ný ullarskel er enn að ná upp fullum vatnsfráhrindandi eiginleikum sínum 

- á nóttunni eða öðrum tímum þegar lengri tími líður milli bleyjuskipta 

- ef barnið kemur til með að sitja lengi og þannig meiri líkur á þrýstingsleka 

- ef ullarskelin er komin á tíma með að þurfa lanólínbað en tímasetningin hentar ekki 

þá er í öllum þessum tilfellum alveg tilvalið að skella ullarliner inn í skelina (á milli skeljarinnar og rakadræga hlutans) og þannig auka til muna við vatnsfráhrindandi eiginleika bleyjunnar. Muna að til þess að nýta sér þetta þarf linerinn að hafa verið settur í lanólínbað. 


Þvottur

Ullarskeljar og -linera þarf mjög sjaldan að þvo. Í byrjun þarf yfirleitt að þvo ullina aðeins oftar en eftir því sem hún er notuð meira og lanólínið sest betur inn í efnið, þá er hægt að fara margar vikur milli þvotta.

Handþvottur eða ullarprógamm í þvottavél. Notið milda ullarsápu og ekki hærra hitastig en 30°, má vera lægri hiti. Þurrkist ekki í þurrkara, heldur leggið til þerris. Sjá leiðbeiningar hér fyrir ullarþvott. 


Efni

Tvö lög af 100% ull. 

Öll efni sem notuð eru í þessa vöru eru 100% Oeko-Tex® vottaðar. 

Ullin er fengin á grimmdarlausan (e. cruelty-free) máta. Í því felst að aðferð sem á ensku kallast mulesing er ekki beitt á dýrin. 


Framleiðsla

Vörurnar frá Pisi eru framleiddar í heimlandinu Eistlandi af eigandanum sjálfum og einnig í samvinnu við hæfileikaríka saumakonu. Saman færa þær okkur handverksvörurnar frá Pisi. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!