Skip to product information
1 of 12

Nulu

Preflat bleyja úr tencel

Preflat bleyja úr tencel

Regular price 3.590 ISK
Regular price 3.590 ISK Sale price 3.590 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Stærð
Litur

Handgerðar preflat bleyjur frá Nulu úr mjúku tencel efni fer ofboðslega vel á viðkvæma húð. Efnið andar vel og heldur bleyjusvæðinu svölu. 


Stærðir

Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð. 

Stærð 1  |  2,5-6 kg

Stærð 2  |  6-11 kg 

Stærð 3  | 10+ kg


Notkun

 Rakadrægt innra lag 

 Vatnsfráhrindandi ytra lag

Þessi vara er innra lag bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis bleyjubuxum úr ull eða annarri tegund af skel. Tencel preflat bleyjurnar passa sérlega vel undir þunnu merino bleyjubuxurnar frá Nulu. Ef þörf er á, er þægilegt að bústa preflat bleyjuna með tencel trifold. Einnig er mjög þægilegt að nota tencel preflat bleyjuna sem innlegg eða búster síðar meir í stærri bleyju eftir því sem barnið stækkar. 

 

Þvottur

Má þvo á allt að 60°C og þurrka á lágri hitastillingu í þurrkara. Vert er þó að taka fram að preflat bleyjurnar eru umtalsvert fljótari að þorna heldur en flestar aðrar gerðir taubleyja. Þess vegna er lítið mál að þurrka preflat bleyjur á snúru. 


Efni

93% TENCEL 

7% Elastane 

Tencel er búið til úr trjátrefjum og framleiðsluferlið krefst að jafnaði mun minna af vatni og orku miðað við framleiðslu á öðrum efnum. Tencel er sérlega rakadrægt þrátt fyrir að vera þunnt efni og er allt að 50% rakadrægari en bómull. 

 

Framleiðsla

Stofnandi Nulu hannar og saumar allar vörurnar sjálf en hún er staðsett í Eistlandi. Hún leggur mikla áherslu á að bjóða upp á plastlausan möguleika í bleyjum fyrir ung börn. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!