Skip to product information
1 of 3

Little Butt Kind

Modal-bómullar preflat bleyja með smellum

Modal-bómullar preflat bleyja með smellum

Regular price 3.790 ISK
Regular price 3.790 ISK Sale price 3.790 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Litur

Mjúk og teygjanleg preflat bleyja úr tveimur lögum af modal-bómullar blöndu. Þessi preflat bleyja er með smellum sem getur verið mjög handhægt fyrir fólk sem kýs síður að nota bleyjufestingar á borð við nælur eða Snappi. 


Stærðir

One-size stærðin af preflat bleyjum frá Little Butt Kind er nokkuð stór og ætti bleyjan því að geta fylgt barninu frá um 5 kg og þar til bleyjutímabilinu lýkur. Stundum er hægt að nota one-size preflat bleyjurnar frá fæðingu en gera má ráð fyrir að þær yrðu í stærri kantinum fyrst um sinn. Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð. 


Notkun

 Rakadrægt innra lag 

☐ Vatnsfráhrindandi ytra lag

Þessi vara er innra lag bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis bleyjubuxum eða skel úr ull eða annarri tegund af skel. 


Þvottur

Hversdaglegur þvottur á 40-60° og má þurrka í þurrkara. Þó er mælt með að þurrka á snúru enda eru preflat bleyjur sérlega fljótar að þorna og modal efni mun hnökra ef það er sett reglulega í þurrkara. 


Efni

Preflat bleyjan er tveggja laga og úr 47% modal, 47% bómull og 6% elastane með smellunum. Efnið er mjúkt viðkomu og fer afskaplega vel með viðkvæma húð. Gera má ráð fyrir að með tímanum geti myndast hnökrar á modal efni.

Modal er hálfmanngert efni sem gert er úr náttúrulegum hráefnum en unnið á tæknilegan hátt til að fá fram góða eiginleika í efninu. Mikil áhersla er lögð á hringrás í framleiðsluferlinu þannig að vatn og efni eru notuð aftur og aftur en ekki bara einu sinni og efnum er heldur ekki sleppt út í náttúruna. Gera má ráð fyrir um 10-20 sinnum minna vatni í framleiðslu á modal efni samanborið við hefðbundna bómullarframleiðslu. 

Efnin í bleyjunni eru með OEKO-TEX® vottun. 


Framleiðsla

Little Butt Kind er nýsjálenskt taubleyjufyrirtæki, rekið af Pippa og fjölskyldunni hennar. Vörurnar sem Pippa hannar fyrir Little Butt Kind eru framleiddar í nánu samstarfi við Little Yellow Bird sem leggur mikla áherslu á sjálfbærni, gæði og siðferði í öllu sem við kemur framleiðsluferlum. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)