Skip to product information
1 of 5

Eco Mini

Stay-dry fitted bleyja með innleggjum

Stay-dry fitted bleyja með innleggjum

Regular price 4.990 ISK
Regular price 4.990 ISK Sale price 4.990 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Fitted bleyja úr bómullar- og bambusblöndu sem passar börnum u.þ.b. 4 - 16 kg. Innsta lag bleyjunnar er Coolmax® efni, sem er athlentic wicking jersey efni og passar að húð barnsins sé þurr og svöl. Með bleyjunni fylgja tvö auka innlegg sem einnig eru með sama stay-dry efninu ofan á. 


Nánari lýsing

Rakadræg bleyja sem hentar sérlega vel fyrir langa lúra og sem næturbleyja. Efnin í bleyjunni eru sérlega mjúk, bæði bómullar- og bambusblandan en einnig stay-dry efnið sem er innsta lagið sem er upp við húð barnsins. 


Stærðir

Þessi fitted bleyja kemur í one-size stærð og hentar börnum um það bil 4-16 kg. Hægt er að hæðarstilla bleyjuna úr fullri stærð og niður í tvær minni stærðir, sem gera alls þrjár stærðir. 


Notkun

 Rakadrægt innra lag 

 Vatnsfráhrindandi ytra lag

Þessi vara er innra lag bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis bleyjubuxum úr ull eða annarri tegund af skel. 

Stundum er alveg nóg að nota fitted bleyjuna eina og sér, en fyrir enn meiri rakadrægni fylgja með tvö innlegg sem gera hana mjög hentuga sem næturbleyju. Annað innleggið er lengra og beint, en hitt innleggið er stundaglaslagað og styttra. Bæði innleggin eru með Coolmax® (AWJ) stay dry efni, eins og bleyjan sjálf. Innleggin smellast í bleyjuna að framan, að aftan eða bæði. Þegar innleggin eru ekki í notkun, þá þarf ekki að hafa áhyggjur af því að barnið liggi á ónotaðri smellu innan í bleyjunni þar sem hugsað er fyrir því og efnislengja sem hylur smelluna. 

Þar sem hægt er að smella innleggjunum að framan- og aftanverðu er auðveldlega hægt að stjórna hvar rakadrægnin er mest. Hægt er að nota innleggin í flestar aðrar bleyjur með smellum, til dæmis mörg AI2 kerfi. Sömuleiðis er hægt að smella flestum öðrum innleggjum í Eco Mini fitted bleyjuna. 


Þvottur

Mælt er með stuttu köldu skoli eða forþvott og síðan löngum aðalþvotti á 40-60°. Gott er að smella innleggjum úr áður en bleyjan er þvegin. Notið ekki klór eða mýkingarefni. Þurrkið á snúru eða á lágum hita í þurrkara. 


Efni

Bleyjan er úr 70% bambus viscose og 30% bómull. Stay-dry lagið er Coolmax® athletic wicking jersey efni sem gert er úr 100% pólýester. 

Varan er laus við skaðleg efni og málma, ásamt því að vera með SGS vottun og uppfyllir öryggisstaðla fyrir Evrópusambandssvæðið. 


Framleiðsla

Vörurnar frá Eco Mini eru framleiddar á ábyrgan hátt í Kína. Eco Mini starfar einungis með framleiðendum sem starfa samkvæmt stöðlum frá Fair Labor Association Workplace Code of Conduct og í samræmi við vinnumarkaðslög. Í þessu felst meðal annars að passað er upp á vinnutíma starfsfólks, að umhverfi og vinnustaður sé öruggur og að sanngjörn laun séu greidd. 

Eco Mini vinnur með fleiri en einum framleiðanda til að tryggja bestu gæði í efnum og vinnslu. Fyrirtækið notar ekki einnota plastumbúðir.

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!