Stretchy flat bleyja úr bómullarterry
Stretchy flat bleyja úr bómullarterry
Teygjanlegar flat bleyjur sem auðvelt er að móta vel að barninu. Efnið er bómullarterry sem er ofið í hringi sem eykur yfirborð og getur efnið þar af leiðandi tekið mun hraðar við vökva og heldur honum jafnframt vel. Mjög áreiðanleg og einföld bleyja á hagstæðu verði sem kemur í fjórum stærðum. Þegar barn stækkar upp úr minni stærðum er hægt að nota þær bleyjur í pad broti sem innlegg í vasableyjur eða til að bústa hvaða bleyju sem er. Stærri stærðir nýtast líka nýburum, til dæmis sem létt og mjúkt baðhandklæði eða undirlag ofan á skiptidýnu.
Stærðir
Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð.
Stærð 1 | 45x45 cm | Upp að 4 kg - lítil nýburastærð sem nýtist vel sem búster síðar
Stærð 2 | 55x55 cm | Upp að 6 kg - stærri nýburastærð sem nýtist vel sem búster síðar
Stærð 3 | 65x65 cm | Upp að 12 kg - sem næst one-size
Stærð 4 | 70x70 cm | Upp að 15 kg - nokkurn veginn one-size+ en getur hentað mjög vel strax eftir nýburableyjur og áfram út bleyjutímabilið
Notkun
☑ Rakadrægt innra lag
☐ Vatnsfráhrindandi ytra lag
Þessi vara er innra lag bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis bleyjubuxur úr ull eða önnur tegund af skel.
Bleyjan er vel rakadræg og gott að nota í lengri lúrum eða jafnvel yfir nótt, gæti þurft að bústa lítillega, til dæmis með nettu innleggi eða trifold úr Tencel.
Þvottur
Má þvo á allt að 60°C og má þurrka á lágum hita í þurrkara en þó best að þurrka á snúru. Vert er að taka fram að flat bleyjur eru umtalsvert fljótari að þorna heldur en flestar aðrar gerðir taubleyja. Þess vegna er lítið mál að þurrka flat bleyjur á snúru.
Efni
100% lífræn bómull, efnið er 310 GSM
Efni sem notuð eru í þessa vöru eru vottuð af Global Organic Textile Standard (GOTS)
Framleiðsla
Stofnandi WeeKing framleiðir allar sínar handverksbleyjur sjálf en hún er staðsett í Eistlandi.
Eitthvað óljóst?
Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!