Skip to product information
1 of 9

Tripulse

Pro leggings úr TENCEL™

Pro leggings úr TENCEL™

Regular price 20.900 ISK
Regular price 17.490 ISK Sale price 20.900 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.
Size

Byltingarkenndar nýjungar í æfingafatnaði! Tripulse Pro leggings

Vissir þú að nánast allur æfingafatnaður á markaðnum í dag er búinn til úr plasti? 

Tripulse færir þér æfingafatnað sem svarar kröfum nútímans - gerður úr háþróuðu efni úr náttúrulegum hráefnum. Gott fyrir frammistöðu, fyrir húðina okkar og fyrir plánetuna.

Notkun

Hágæða leggings sem hannaðar eru fyrir hámarks frammistöðu, eru tilvaldar í hraðar, ákafar æfingar og æfingar í heitum sal eða þar sem svitnað er mikið. Buxurnar eru úr aðeins þynnra efni en hinar leggings buxurnar frá Tripulse sem eru með hliðarvösum. Þær anda svakalega vel og eru einstaklega mjúkar.

Vel þekjandi og ekki gagnsæjar, sama hversu djúpar hnébeygjur þú gerir!

Buxurnar eru með háu mitti og haldast vel uppi. Þær eru með auka teygjustreng í mitttinu til enn frekari aðlögunar að líkamanum þínum.

Stærðir

Sjá stærðatöflu neðar á síðunni.

Efni

Buxur:
84 % TENCEL™ lyocell
16% Roica® EF385 (endurunnið teygjuefni)

Roica® EF385 er umhverfisvænni og sjálfbærari kostur en hefðbundin teygjuefni. Efnið er endurunnið og eiturefnalaust.

Mittisteygja:
Náttúrulegt gúmmí og lífræn bómull

Þvottamiðar:
Lífræn bómull

Bleklitir:
Umhverfisvænir og heilsusamlegir vatnslitir sem innihalda ekki plast eða önnur skaðleg efni. Allir litir eru með vottun Organic 100 Content Standard.

Fatalitir og önnur efni:
Litun efna er eitt stærsta mengunarvandamál í textíliðnaði. Þess vegna leggur Tripulse mikla áherslu á að velja umhverfisvænasta kost sem völ er á. Öll efni og litir uppfylla Oekotex 100 staðalinn sem þýðir m.a. að engin skaðleg efni eru til staðar. Til að ganga enn lengra, notar Tripulse aðeins fataliti sem uppfylla REACH reglugerð Evrópusambandsins sem tekur til skaðlegra áhrifa af notkun efna.

Þvottur

Má þvo í vél á lágum hita, hæst á 30°C, og hengið til þerris en sleppið þurrkara. Þvoið á röngunni með öðru taui í svipuðum lit. Flíkin getur minnkað ögn í fyrsta þvotti en tekið er tillit til þess í leiðbeiningum um val á stærð. Notið milt og umhverfisvænt þvottaefni.

Efnið í Tripulse buxunum er einstakt og er bakteríudrepandi frá náttúrunnar hendi. Þetta þýðir að þú þarft alls ekki að þvo flíkina eftir hverja notkun eins og þarf með flestan æfingafatnað úr gerviefnum. Lykt festist mun síður í efninu og oft er nóg að lofta aðeins um flíkina og óþarfi að þvo hana. Eins er vel hægt að skola aðeins úr flíkinni í stutta stund undir rennandi vatni og hengja til þerris.

Með tímanum er eðlilegt að fáeinir hnökrar geti myndast á náttúrulegum efnum, en lítið mál að fjarlægja þá. Tripulse segir þetta vera merki um að varan sé sannarlega úr náttúrulegum hráefnum en ekki gerviefnum.

Ábyrg framleiðsla

Vörur eru framleiddar í Evrópu og algjört gagnsæi ríkir um uppruna einstakra hluta varanna.

Öll aðfangakeðja og framleiðsla Tripulse er vandlega valin og mikil hugsun er sett í val á efnum.

Tripulse hefur ekkert að fela!
Smellið hér fyrir ítarlegar upplýsingar um alla hluta ferlisins.

Umsagnir

My new favorite leggings
The Leggings feel great, like a second skin actually. I really like the material and they are very comfy. My new favorites :)

Great leggings
These leggings are great! I really like the breathable material. I didn't expect such a difference in feel compared to plastic, they feel cool against the skin. Perfect for workout. They stays in place with the waistband, great design feature. So happy with a natural alternative. Amazing!

Love! Love!
Love these leggings and this company! So happy you are here creating ethical, sustainable, and breathable products!

Love these workout leggings!
Love the thickness, no see through seat when doing yoga or pilates. Soft material and quality fabric.

Lovely & Breathable Material for Eczema
These are a game-changer! I love these leggings! I wear them for work & they are so comfortable, soft & breathable!
Which is extremely important since I have eczema behind my knees, the material on these leggings has made working more comfortable for me & I’ll be sure to be buying another pair soon!

Smellið hér til að lesa meira um val á efnum. View full details
  • Einfalt að mæla

    Mitti (waist): mælið minnsta hluta mittis.
    Mjaðmir/rass (hip/seat): mælið breiðasta hluta.

  • Stærðatafla

    Ef þú mælist í mismunandi stærð í mitti og mjöðmum, þá mælum við með að miða við mittismálið (efri mælinguna). Efnið er teygjanlegt og mun laga sig vel að mjöðmunum.

  • Hámarks þægindi og mýkt

  • Teygjanlegar en alls ekki gagnsæjar

  • Hátt mitti og renna ekki niður

Umbreytum textíliðnaði

Veljum vörur frá fyrirtækjum þar sem raunveruleg meðvitund ríkir um val á efnum og framleiðsluferlum.