Innra tau

Til eru margar gerðir taubleyja. Í grófum dráttum má segja að taubleyjur séu annað hvort í einu lagi eða tveimur pörtum. Hér hjá Tau leggjum við mesta áherslu á tveggja hluta kerfi, vegna þess að okkur finnst þær vörur bjóða upp á mesta fjölbreytni til að mæta ólíkum þörfum einstaklinga eftir hvað hentar hverju sinni. Einn helsti kosturinn við að nota tveggja hluta taubleyjur er að hægt er að para saman innri (rakadræga) hluta og ytri (vatnsfráhrindandi) hluta eftir eigin hentisemi, alveg óháð því hvort þessir tveir hlutar tilheyri endilega sama kerfinu eða komi frá sama framleiðanda.

Við bjóðum upp á ólíkar gerðir af bleyjum sem eru innra lagið og eru þar með ragadrægi hluti bleyjunnar. Við förum á ákveðinn hátt aftur í upprunann, að nota flatar, þunnar bleyjur í ýmsum sniðum sem eru brotnar saman og bundnar utan um barnið. Mikil þróun hefur átt sér stað í þessum bleyjum undanfarin ár, þær eru gerðar úr teygjanlegum efnum sem eru í senn rakadræg og fljót að þorna. Þær gerðir sem við bjóðum upp á eru preflat bleyjur, contoured bleyjur, fitted bleyjur ásamt innleggjum með smellum sem passa í skeljar sem við erum með.