Skip to product information
1 of 5

Nulu

Þykkar bleyjubuxur úr merino ull

Þykkar bleyjubuxur úr merino ull

Regular price 5.590 ISK
Regular price 6.590 ISK Sale price 5.590 ISK
Sale Sold out
Tax included.
Stærð
Mynstur

Bleyjubuxur úr tvöfaldri merino ull sem koma í þremur fallegum mynstrum. Þetta er þykkari týpan af ullarbuxum frá Nulu og er frábær kostur sem skel yfir næturbleyjur. Þrátt fyrir að vera þykkari týpan af bleyjubuxum frá Nulu, þá eru þær mjög nettar og alls ekki fyrirferðamiklar. Ullin er slétt og mjúk, stingur ekki og liggur því afar vel á húð barnsins og hentar fyrir viðkvæma húð. Bleyjubuxurnar eru með falda sauma og erta þeir því ekki húðina. Ullin andar vel og barninu verður því hvorki of heitt né of kalt, en þetta getur verið mikilvægt þegar börnin eru farin að sofa samfellt í fleiri klukkustundir yfir nóttina og eru lengi með sömu næturbleyjuna. Sniðið er hannað með það í huga að ragadræg næturbleyja rúmist vel undir. 


Stærðir 

Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð. 

Stærð 1  |  4-8 kg  | 56-68 cm 

Stærð 2  |  7-11 kg  |  74-86 cm 

Stærð 3  | 10-15 kg  |  86-98 cm 

Ef í vafa, þá mælum við frekar með að taka stærri stærð frekar en minni, sér í lagi ef nota á bleyjubuxurnar yfir næturbleyju, fitted bleyju eða bleyjur í stærri kantinum. 

 

Notkun

☐ Rakadrægt innra lag 

☑ Vatnsfráhrindandi ytra lag

Þessi vara er ytra lag bleyjunnar og notast því yfir innri hluta bleyjunnar sem er rakadrægur. Bleyjubuxur úr ull gegna sama hlutverki og aðrar skeljar, að vera vatnsfráhrindandi lag yfir rakadræga bleyju sem er undir. Rakadræga bleyjan getur til dæmis verið fitted bleyja, preflat bleyja eða flat bleyja. Fyrst er rakadræga bleyjan sett á barnið og það svo klætt í mjúkar ullarbuxurnar yfir. 

Til að ull virki sem vatnsfráhrindandi skel yfir bleyju er hún lögð í bleyti í lanólín. 


Þvottur

Best er að handþvo ullina, en einnig má setja þessar bleyjubuxur frá Nulu á kaldan eða 30° ullarþvott í þvottavél. Notið milda sápu sem ætluð er til ullarþvotts. Smellið hér til að skoða leiðbeiningar fyrir ullarþvott og lanólínbað. 

Ótrúlegt en satt minnkar umfang þvotts ef notaðar eru ullarvörur. Ástæðan fyrir því er að í stað þess að þvo skeljar eftir hverja notkun, þá þarf að þvo ullina mun sjaldnar. Ekki þarf að þvo ullina þó svo að þvag berist í hana, á milli bleyjuskipta er nóg er að leggja ullarbuxur þannig að það lofti vel um þær og þá gufar rakinn upp. Þegar ullarbuxurnar eru farnar að halda síður vökva eða ef kúkur fer í þær, þá skal þvo þær. Ef lítill blettur fer í ullina er í góðu lagi að blettaþvo hana.

 

Efni 

Ytra lag - 100% merino ull 

Innra lag - 99% merino ull og 1% elastane 

Öll efni sem notuð eru í þessa vöru eru 100% Oeko-Tex® vottaðar. 

Ullin er fengin á grimmdarlausan (e. cruelty-free) máta. Í því felst að aðferð sem á ensku kallast mulesing er ekki beitt á dýrin. 


Framleiðsla

Stofnandi Nulu hannar og saumar allar vörurnar sjálf en hún er staðsett í Eistlandi. Hún leggur ríka áherslu á að bjóða plastlausa valkosti í bleyjum fyrir ung börn. 

View full details

Eitthvað óljóst?

Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!