Original leggings úr TENCEL™
Original leggings úr TENCEL™
Byltingarkenndar nýjungar í æfingafatnaði!
Hvernig hljómar íþróttafatnaður úr náttúrulegum efnum sem þarfnast miklu sjaldnar þvotta?
Tripulse Original leggings með hliðarvösum.
Vissir þú að nánast allur æfingafatnaður á markaðnum í dag er búinn til úr plasti?
Tripulse færir þér æfingafatnað sem svarar kröfum nútímans - gerður úr háþróuðu efni úr náttúrulegum hráefnum. Gott fyrir frammistöðu, fyrir húðina okkar og fyrir plánetuna.
Notkun
Notkun
Framúrskarandi buxur sem hannaðar eru fyrir hámarks frammistöðu og hreyfanleika. Buxurnar henta bæði í rólega sem og hraðari hreyfingu. Buxurnar hafa góða vasa á báðum skálmum.
Efnið er einstakt og er bakteríudrepandi frá náttúrunnar hendi, andar vel og er sérlega mjúkt viðkomu.
Vel þekjandi og ekki gagnsæjar, sama hversu djúpar hnébeygjur þú gerir!
Buxurnar eru með háu mitti og haldast vel uppi.
Stærðir
Stærðir
Stærðir í cm
Stærð . . . . . XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL
Mitti . . . . . .66 - 69 - 72 - 76 - 80 - 84 - 90
Mjaðmir . . .91 - 94 - 97 - 101 - 105 - 109 - 114.5
Efni
Efni
Buxur:
84 % TENCEL™ lyocell
16% Roica® V550 (umhverfisvænni útfærsla á teygjuefni á borð við elastane)
Roica® V550 er umhverfisvænni og sjálfbærari kostur en hefðbundin teygjuefni. Efnið brotnar niður í náttúrunni án þess að seyta frá sér hættulegum efnum út í jarðveginn. Það brotnar tiltölulega hratt niður, til að mynda er 35% af efninu búið að brotna niður eftir 270 daga.
ROICA V550 er mun sjálfbærari kostur en hefðbundin teygjuefni á borð við elestane, spandex og lycra. Þau efni brotna ekki niður í náttúrunni og valda örplastmengun.
Teygja:
Náttúrulegt gúmmí og lífræn bómull
Þvottamiðar:
Lífræn bómull
Bleklitir:
Umhverfisvænir og heilsusamlegir vatnslitir sem innihalda ekki plast eða önnur skaðleg efni. Allir litir eru með vottun Organic 100 Content Standard.
Fatalitir og önnur efni:
Litun efna er eitt stærsta mengunarvandamál í textíliðnaði. Þess vegna leggur Tripulse mikla áherslu á að velja umhverfisvænasta kost sem völ er á. Öll efni og litir uppfylla Oekotex 100 staðalinn sem þýðir m.a. að engin skaðleg efni eru til staðar. Til að ganga enn lengra, notar Tripulse aðeins fataliti sem uppfylla REACH reglugerð Evrópusambandsins sem tekur til skaðlegra áhrifa af notkun efna.
Þvottur
Þvottur
Má þvo í vél á lágum hita, hæst á 40°C, og hengið til þerris en sleppið þurrkara. Þvoið á röngunni með öðru taui í svipuðum lit. Flíkin getur minnkað ögn í fyrsta þvotti en tekið er tillit til þess í leiðbeiningum um val á stærð. Notið milt og umhverfisvænt þvottaefni.
Efnið í Tripulse buxunum er einstakt og er bakteríudrepandi frá náttúrunnar hendi. Þetta þýðir að þú þarft alls ekki að þvo flíkina eftir hverja notkun eins og þarf með flestan æfingafatnað úr gerviefnum. Lykt festist mun síður í efninu og oft er nóg að lofta aðeins um flíkina og óþarfi að þvo hana. Eins er vel hægt að skola aðeins úr flíkinni í stutta stund undir rennandi vatni og hengja til þerris.
Með tímanum er eðlilegt að fáeinir hnökrar geti myndast á náttúrulegum efnum, en lítið mál að fjarlægja þá. Tripulse segir þetta vera merki um að varan sé sannarlega úr náttúrulegum hráefnum en ekki gerviefnum.
Ábyrg framleiðsla
Ábyrg framleiðsla
Vörur eru framleiddar í Evrópu og algjört gagnsæi ríkir um uppruna einstakra hluta varanna.
Öll aðfangakeðja og framleiðsla Tripulse er vandlega valin og mikil hugsun er sett í val á efnum.
Tripulse hefur ekkert að fela!
Smellið hér fyrir ítarlegar upplýsingar um alla hluta ferlisins.
Umsagnir
Umsagnir
Best. shorts. ever.
I never wanna live without these again, not kidding! I did not even know I needed shorts like these before I got them. I have used them so SO much all spring and summer. They are flattering! ;) Feels good on the skin, no ithcyness. Love the highwaits and love the waistband if you wanna make them tighter at some training for example. LOVE THEM.
Fits perfect
Love that shorts. They fit perfect and they are super soft. Love wearing them while trainings but also at free time activities.
Perfect bikers!
I can easily say that these are my favorite bikers now, because they are so comfortable and perfect for working out. The material is soft and thick enough that it has a slight compression effect, just the right amount, and they are stretch proof as well as squat proof (not see through). Perfect!
Great
I love how comfy these shorts are! I've used them for yoga, hiking and cycling and couldn't have been happier. They fit perfectly and it feels great knowing that they're produced in a sustainable way in Europe. The green fashion revolution is here!
Never smell, high quality
I'm really happy with the quality of these shorts, I don't think they will ever rip. They're honestly super comfortable, the waistband stays in place, and I feel confident in the gym. I spent days looking for athletic wear that was environmentally safe, and healthy for me. My Lululemon was not cutting it anymore, we aren't meant to wear plastic. I wear these for days, and as long as I lay them out to get some air in between uses, they don't smell at all, which some times of the month, we ladies feel more self-conscious. I don't dry them after washing, I just let them air dry, and they dry pretty quickly, which is important. More people need to know about their products because now I have one pair of shorts and one pair of leggings and I seriously don't feel like I need anything else. Before, I was rotating through three or four pairs of leggings.
Efni
Ræktun og framleiðsla á textíl er af ýmsum toga og hefur mismikil umhverfisáhrif.
Manngerð gerviefni eru langalgengasta efnið sem notað er í nýjan fatnað í heiminum í dag. Gerviefni eru mörg gerð úr plastefnum sem losa örplast við þvott og brotna hægt eða ekki niður náttúrunni.
Náttúruleg efni eru til að mynda bómull, lín/hör, hampur og bambus. Ræktun og vinnsla þessara efna hefur líka áhrif á umhverfið, til dæmis með tilliti til vatnsnotkunar og notkunar á ólífrænum efnum eins og skordýraeitri. Þessi efni brotna að jafnaði auðveldlega niður í náttúrunni.
Einnig eru til efni sem eru hálfmanngerð en búin til úr náttúrulegum hráefnum. Þau eru unnin á ákveðinn hátt til að þau fái ákjósanlega eiginleika eins og teygjanleika, mýkt, styrk, vatnsheldni. Oft eru þessi efni unnin í hringrásarframleiðsluferlum sem tryggir yfirburða góða nýtingu vatns og efna. Með þessum hætti verða umhverfisáhrif vinnslunar í lágmarki og geta verið minni en við hefðbundna vinnslu á náttúrulegum efnum. Þar sem þessi hálfmangerðu efni eru úr náttúrulegum hráefnum, þá brotna þau auðveldlega niður í náttúrunni.
Finndu þína stærð
-
Einfalt að mæla
Mitti (waist): mælið minnsta hluta mittis.
Mjaðmir/rass (hip/seat): mælið breiðasta hluta. -
Stærðatafla
Ef þú mælist í mismunandi stærð í mitti og mjöðmum, þá mælum við með að miða við mittismálið (efri mælinguna). Efnið er teygjanlegt og mun laga sig vel að mjöðmunum.
-
Hámarks þægindi og mýkt
-
Teygjanlegar en alls ekki gagnsæjar
-
Hátt mitti og renna ekki niður
Umbreytum textíliðnaði
Veljum vörur frá fyrirtækjum þar sem raunveruleg meðvitund ríkir um val á efnum og framleiðsluferlum.