Stretchy flat bleyja úr tencel
Stretchy flat bleyja úr tencel
Taubleyjuvinir okkar á meginlandinu eru að missa sig yfir þessum einföldu en fallegu bleyjum. Handgerðar flat bleyjur úr tveimur lögum af mjúku tencel efni. Þessar stílhreinu hvítu flat bleyjur frá WeeKing eru mjög nettar en rakadrægar og sérlega mjúkar fyrir viðkvæma húð barnsins.
Stærðir
Stærðir eru ávallt til viðmiðunar þar sem börn eru ólík að líkamsgerð.
Stærð 1 | 45x45 cm | Upp að 4 kg - lítil nýburastærð sem nýtist vel sem búster síðar
Stærð 2 | 55x55 cm | Upp að 6 kg - stærri nýburastærð sem nýtist vel sem búster síðar
Stærð 3 | 65x65 cm | Upp að 12 kg - sem næst one-size
Stærð 4 | 70x70 cm | Upp að 15 kg - nokkurn veginn one-size-plus en getur hentað mjög vel strax eftir nýburableyjur og áfram út bleyjutímabilið
Notkun
☑ Rakadrægt innra lag
☐ Vatnsfráhrindandi ytra lag
Þessi vara er innra lag bleyjunnar sem er rakadrægt og er notað með öðru ytra lagi sem er vatnsverjandi lag, til dæmis bleyjubuxum úr ull eða annarri tegund af skel.
Frábær nett bleyja sem hentar vel á daginn og auðvelt að bústa til að nota yfir langan lúr eða nótt.
Þvottur
Má þvo á 40-60°og þurrka á lágum hita í þurrkara en þó best að þurrka á snúru. Vert er að taka fram að flat bleyjur eru mjög fljótar að þorna og þess vegna er lítið mál að þurrka hana á snúru.
Efni
Bleyjan er úr tveimur lögum af mjúku efni úr 95% tencel og 5% elastan.
Tencel andar vel og hefur þá eiginleika að vera hálf-stay-dry. Þetta þýðir að barnið finnur síður fyrir vætunni en samt eru ekki notuð nein gerviefni til að ná fram þessum eiginleika.
Efni sem notuð eru í þessa vöru eru vottuð af Global Organic Textile Standard (GOTS).
Framleiðsla
Stofnandi WeeKing framleiðir allar sínar handverksbleyjur sjálf en hún er staðsett í Eistlandi.
Eitthvað óljóst?
Smellið hér fyrir einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um ýmislegt tengt taubleyjum eins og þvott, efni og allt þetta lingó og skammstafanir!